Nýr staður

Ég er að spá í að byrja bara að blogga hérna í staðinn, sænski blogginn minn er hérna og mér líst mikið betur á. Ég veit reyndar ekki hvað eru margir íslendingar sem nenna að lesa af mér bloggin en það gæti verið að ég verði mikið duglegri við að skrifa hérna, auðveldara og skemmtilegra að setja inn myndir. Oh well.

Jæja fréttir. Vinkonur mínar úr skólanum í Örebro voru í heimsókn um helgina og var það alveg svakalega gaman. Það var djammað og bara skemmt sér eins og við höfum ekkert gert síðan ég var í Örebro, og það er komið langt síðan! Hætti þar áður en ég fór til Suðureyrar að vinna og það var haustið/veturinn 2005. Jeeez! Tíminn er alveg ótrúlega fljótur að líða. Anywho, nokkrar myndir þaðan...

       

   

Síðasta myndin er af mér dansandi "Det gör ont"-dansinn af henni Lenu Ph, lendi alltaf í því for some reason....

Please comment

RSS 2.0